Home About Us Forum Contact Ebooks Links Live Webcam Blog Submit Your Website
101 Fly Fishing Tips
Click a country on the map below to view fishing videos related to that country.
 

Added: Jul 14, 2008

From: gislikonrad

Duration: 7:42

Jæja... Ég var búinn að lofa vídjó bloggi, so here it comes. Ferðin er búin að vera awesome hingað til. Við lentum í Boston á mánudaginn og var farið bara beint á hótel og svo í Best Buy. Ég og Ólarnir fengum okkur Nintendo DS til að vera með í bílnum í ferðinni. Það var annars lítið sem við vildum gera í Boston, þannig að við lögðum af stað til NY daginn eftir. Við ákváðum að finna okkur bara hótel í New Jersey í staðinn og þar stoppaði strætó beint fyrir utan sem fór beint á Manhattan, sem var gott. Við fórum þangað daginn eftir á smá rölt. Farið var á Times Square og Fifth Avenue, en ég verð nú að segja, þetta er frekar óspennandi borg. Don't get me wrong, það er margt hægt að gera þarna og það er alltaf eitthvað í gangi, en ég myndi ALDREI vilja búa þarna. Seinna um kvöldið fórum við í Comic búðina hans Kevin Smith sem heitir, "Jay and Silent Bob's Secret Stash." Mjög töff búð og keypti ég mér nokkrar bækur þar. Þar var meira að segja gaur að vinna sem var með smá hlutverk í Clerks. Daginn eftir var farið til Delaware. ÞAR var sko verslað. Það var MacBook Black, Heimabíó magnari, vídjó kamera og nokkrir XBox leikir. Það er nefnilega enginn söluskattur í Delaware... [Not just a hat rack, my friend...] Núna erum við í Virginia. Ég gisti hjá Bethany á meðan Höddi og Ólarnir eru á hóteli. Það er búið að vera geggjað gaman hérna. Búin að fara að nokkra pöbba. Fórum á rölt um Old Towne og fórum á nokkra skemmtilega staði. Einn sem hét Tap House og annar sem hét Bier Garden sem voru með alveg svakalegt úrval af bjór. Ég smakkaði t.d. Double Chocolate Stout... já... súkkulaði bjór. Hann var spes. Hins vegar var ekki til íslenskur bjór... Enginn Thule.. sveeeekk... Dagurinn í dag var awesome.. Við fórum í Busch Garden Europe og fórum í fullt af rússíbönum. Nokkrir sem voru sérstaklega skemmtilegir eins og The Griffon, Alpengeist og Apollo's Chariot. Það voru nokkur 90 gráðu dropp í The Griffon, eins og þetta... hehehe.. Já, við vorum í fremstu röðinni og héngum þarna og horfðum niður. Var alveg svakalegt, sko. Bethany var svo hrædd að þegar Griffon var búið, þá skalf hún svo mikið að hún gat ekki labbað. hahha Í kvöld er síðasta kvöldið í Virginia. Við fórum á Hooters og var það ekki eins perralegt og maður var látin halda... Það var bara góður matur og flottur staður. Stelpurnar tala við mann eins og þær hafi áhuga, en þær eru auðvitað bara að reyna að veiða meira tips frá manni... Maður sér alveg í gegnum þetta... hehehe... Annars leggjum við snemma af stað til Kentucky á morgun, en þar sem við styttum NY stoppið um eitt kvöld, þá ákváðum við að stoppa eina nótt í West Virginia inná milli til að stytta aksturinn, því að annars væri þetta rúmlega 10 tíma akstur. En endilega fylgist með okkur á www.ogn.is/ferdin... See ya... ;)

Channel: Comedy

Tags: blog  gísli  höddi  road  trip  usa  waage  óli 


Rating: ( ratings)    Views: 182    Comments: 2

SmileItsRio Says:

Jul 14, 2008 - Array

gislikonrad Says:

Jul 14, 2008 - Array

SmileItsRio Says:

Jul 14, 2008 - Array

Travel Links Boat Links
101 Fly Fishing Tips